Skilmálar

Fyrirtækið

NafnGeðhjálp
Kennitala531180-0469
VSK númer53133
Sími570-1700
Netfanggedhjalp@gedhjalp.is
HeimilisfangGuðrúnartún 1, 105 Reykjavík

Almennt

Geðhjálp áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Öll verð á vefnum eru birt með fyrirvara um innsláttarvillu.

Greiðslur

Geðhjálp tekur við greiðslum í gegnum heimasíðu með Mastercard, Maestro, VISA og VISA Electron.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar frá okkur innan þriggja virkra dag eftir pöntun. Sé varan ekki til hjá okkur mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Geðhjálp ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Geðhjálp til viðkomandi viðskiptavinar er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Hægt er að sækja vörur hjá Geðhjálp í Guðrúnartúni eða fá vörur sendar með Íslandspósti gegn greiðslu.

Fyrir pantanir sem senda á til útlanda greiðist sendingargjald. Viðskiptavinur fær staðfestingu í tölvupósti þegar hann hefur lagt inn pöntun og gengið frá greiðslu.

Með fyrirvara um prentvillur og áskiljum við okkur rétt til að hætta við sölu á vöru hafi rangt verð verið birt

Að skipta eða skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Governing law / Jurisdiction

These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

Skilmálar póstlista

Með því að skrá þig á póstlista G vítamíns veitir þú Geðhjálp leyfi til að vera í sambandi við þig, meðal annars til að senda þér daglegan G vítamínskammt á meðan á verkefninu G vítamín stendur, miðla upplýsingum um starfsemi félagsins eða kynna hvernig leggja má verkefnum félagsins lið. Þú getur hvenær sem er óskað eftir því að hætta að fá slíkar upplýsinga eða að upplýsingum um þig sé eytt.

Fáðu sendan daglegan G vítamínskammt í tölvupósti

G vítamín